Saturday, August 18, 2007

góðan dag



Góðan Dag, (þið kunnið örugglega öll að segja góðan dag núna á hinu tugumálinu)

Er að sjá að það er hið fínasta veður á Króknum. :o)
Gaurarnir að koma heima í dag, Pabbi og Gunnar T.
Ég ætla að fara að koma mér út í gamlabæinn í smá tíma, smá tölt.
Er búin að vera að dandalast á netinu í morgun, gera það sem þarf að gera, borga í banka, svara eða senda HÆ-um. Og eitthvað að líta á landið.
Komin með þó nokkrar tíðir til að læra, halda fyrirlestur og fleira......................... nákv... hehemm
bandast kanski meira hér síðar.
Hafið það gott.

Monday, August 13, 2007

smá myndir á mánud.- Lundi 13.août.















Vist listaverk í þessari mynd, sjáið aðeins í Kastalann sem er í gamlabænum í Annecy, og þá er ég að tala um kastala.















Þetta er frá hjólaferðinni minni, þegar ég fór á hinn endann á vatninu. Þetta er sirka tekið útá mitt vatnið.



















Þetta get ég gert með lélegri myndavél :) segið svo að ég geti ekki tekið myndir.















Einn göngustígurinn, sem er frá Kastalanum og að aðaltúristagötunni í gamlabænum.















Hérna sjáið þið aftan á fangelsið í gamlabænum, getið þið séð hvað klukkan er ?
Smá hver er Valli, spurning ef þið munið eftir þeim pilti ;)