C'est mon dernier mois ici, donc après un jour.
Mais c'est bon. :)
Je suis fou de vin rouge et de poisson sec, je goûte beaucoup et après j'ai la tête qui tourne.. mais c'est agréable,
hahahaa. Donc, la nourriture est bonne.
J'aime regarder "Bones" à la tv., c'est
:o) Þetta er nú reyndar ekki allt alveg rétt sem ég er að halda fram, eða semja þarna ef einhver ykkar náið að þýða þetta ja eða skiljið, er Guðni t.d. ekki búin að segja all oft að hann sé að læra frönskuna líka og tali hana :) Þú getur leikið þér að þessu í 1.mín. ;o)
En já ætlaði nú bara að segja hæ, fer að pakka á morgun og flyt í annan bæ á laugardagsmorguninn.
Einkunin þennan mánuðinn var góð, hærri en góða einkunnin í síðasta mánuði.
Og ég er búin að koma google earth inná tölvuna hjá mér, þó hún sé nú greinilega búin að fá einhverja pest, tölvan, síðan hún kom hingað, það er ekki vírus en það er eitthvað sem er að hindra hana frá því að gera sitt besta.
Svo nú getur maður farið að njósna um flesta, nema því miður þá sem búa á króknum eða fyrir austan, þar sem það er ekki búið að koma þeim stöðum almenninlega inná google, (máður getur ekki séð hús, umhverfi og bíla skýrt).
Í bili, ég les kanski eitthvað frá ykkur.. Síðar, verið þið blessuð og sæl.
C'est sa. /C'est tout.
Thursday, August 30, 2007
Wednesday, August 29, 2007
SUDOKU
Sæl og blessuð öll sem eitt. Ég varð bara að henda þessu snöggt inn, sérstaklega til GUÐNA (Skipholt) og ÁSA (Hólatúni) Dagblöðin hérna eru eingöngu með DIFFICILE sudoku þrautir... svo þið ættuð að hafa það gott, þar sem þið eruð svo miklir meistarar í þessu, að ykkar eigin mati að þið þurfið bara að leika ykkur að erfiðu þrautunum ;) hahaaa Annars, tókum við við diplómunum núna áðan kl: 15:30. Ég þarf að vera komin út héðan klukkan 08:00 á laugardagsmorgun. Flytja. og aukatímarnir næstu tvo daga byrja á morgun kl: 08:30. Stutt og lag gott núna, býst við að þið séuð komin með uppí kok á laungum frásögnum eða endurmynningum, spurning hvað maður getur kallað þetta.. bless,bless þar til síðar. Ása Björg. |
Sunday, August 26, 2007
Dimanch,26. smá myndasafn kastali
Þessi kastali er ekkert slor, ein hliðin..
Geggjað að eiga heima þarna við hliðina á kastalanum. geggjað maður
Ég á leiðinni upp einn "litla" stigann á leiðinni uppí einn af varðstöðum kastalans.
ÉG ER AÐ KLAPPA FÍNUM ASNA, einum af 3 sem voru þarna.
Var að sjá þá í fyrsta skiptið á ævinni.
Mér fannst þetta nú of flott til að taka ekki mynd af því, Gamli góði máninn.